Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Eyjafjarðarsveitar v/ Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar.
Velkominn í vefverslun Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar sem er í eigu og rekstri Eyjafjarðarsveitar kt. 410191-2029, 605 Eyjafjarðarsveit. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“, og „okkar“ þegar átt er við Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar samþykkir þú þessa skilmála:
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- SKILGREININGAR.
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda skipta.
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstaklings og er aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
- Kortin gilda bæði í sundlaug og líkamsrækt.
- Kortin eru sjálfsafgreislukort.
- NOTENDAREGLUR.
Skiptakort:
- Hægt er að kaupa sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- Fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- Skiptakort gildir ekki fyrir hópa.
- Skiptakort gilda í fjögur ár frá kaupdegi.
Tímabilakort:
- Eru kort sem gefin eru út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann einstakling.
- Eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- Kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
- GJALDSKRÁ.
- Eyjafjarðarsveit gefur árlega út gjaldskrá fyrir starfsstaði sína. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar esveit.is og hangir uppi á starfsstöðum.
- SKILAREGLUR.
- Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er boðið uppá að framselja tímabilskort á aðra kennitölu.
- VANEFNDIR, LOKUN KORTA.
- Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Eyjafjarðarsveit heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.
- GREIÐSLUVANDAMÁL.
- Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
- MISNOTKUN Á KORTUM.
- Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilskort sem skráð er á annan einstakling hefur Sveitarfélagið Ölfus heimild til að loka viðkomandi korti.
- PERSÓNUUPPLÝSINGAR.
- Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er á vefsíðu þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæði okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp í pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.