Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Eyjafjarðarsveitar.
Velkominn í vefverslun Eyjafjarðarsveitar sem er í eigu og rekstri Eyjafjarðarsveitar, kt. 410191-2029, Skólatröð 9, 605 Akureyri. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við vefverslun Eyjafjarðarsveitar.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Eyjafjarðarsveitar samþykkir þú þessa skilmála:
1. SKILGREININGAR
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstaklings og eru aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
- Sundkort veita aðgang að sundlaug Eyjafjarðarsveitar og líkamsræktinni í íþróttamiðstöðinni.
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort.
- Klippikort gildir einungis fyrir Gámasvæði Eyjafjarðarsveitar.
2. NOTENDAREGLUR
Skiptakort
- Hægt er að kaupa sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- Fleiri en einn einstaklingur innan sömu fjölskyldu getur notað sama skiptakort.
- Skiptakort gildir ekki fyrir hópa.
- Gildistími skiptakorta er 48 mánuðir frá kaupdegi.
Tímabilskort
- Eru kort sem gefin eru út fyrir ákveðinn einstakling og eru til einkanota fyrir þann einstakling.
- Eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- Kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
3. GJALDSKRÁ
- Eyjafjarðarsveit gefur árlega út gjaldskrá fyrir starfsstaði sveitarfélagsins. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar, esveit.is, og hangir uppi á starfsstöðvum.
4. SKILAREGLUR
- Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort.
- Ekki er hægt að leggja inn sundkort tímabundið.
- Ekki er boðið upp á að framselja tímabilskort á aðra kennitölu.
5. VANEFNDIR, LOKUN KORTA
- Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Eyjafjarðarsveit heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.
6. GREIÐSLUVANDAMÁL
- Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá (t.d. vangreiðsla) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
7. MISNOTKUN Á KORTUM
- Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa eða nota tímabilskort sem skráð er á annan einstakling hefur Eyjafjarðarsveit heimild til að loka viðkomandi korti.
8. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
- Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
- Þegar verslað er á vefsíðu þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun og kaupsaga er vistuð á öruggu læstu svæði.
- Kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæði okkar. Einungis er hægt að sjá tegund greiðslu ef fletta þarf upp í pöntun.
- Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.
